fimmtudagur, 16. júní 2011

31. Ljósin í bænum

Í síðustu viku átti ég erindi til Akureyrar og þar fann ég í Fjölsmiðjunni ljósin sem ég var að leita að fyrir ganginn niðri. Þar er ég núna með ljós sem ég keypti í Svíþjóð um árið þegar ég var með gráu delluna, en þá setti ég þau í nýju íbúðina mína á Akureyri. Hér passar reyndar ekki vel að hafa hangandi ljós (já já, seint að fatta það núna eftir tuttugu ár!) því að gangurinn er bæði lágur og þröngur og það er viss passi að þegar ég á leið þar um með gólfmoppuna skal ég alltaf reka skaftið í að minnsta kosti annað ljósið svo að klingir hátt. Það er dálítið leiðinlegt að auglýsa alltaf þannig klaufaskap sinn. Nú er auk þess annað ljósið bundið afar pent upp með baggabandi vegna þess að frystiskápsflykkið mitt er svo hávaxið og enn ekki komið á sinn stað. Rykið á ljósinu stafar að langstærstum hluta af því að ég er enn ekki búin að sparsla allt sem þarf þarna niðri og það tekur því ekki að moka út fyrr en að því loknu.
Þessi munu passa miklu betur og gera ekki nærri eins mikinn hávaða. Verð: 200 krónur pr. stk.
Vandinn er hins vegar sá að gangloftið er klætt baneitruðu og bönnuðu asbesti og rafvirkjasonurinn þverskallast við að bora í það svo að það er víst best að ég geri það bara sjálf. Ef til vill dugar nú að nota bara göt þau sem fyrir eru, það er ekki fullkannað.
Uppfært: Sjá þessa færslu hér

3 ummæli:

  1. hæ hæ

    alveg nauðsynlegt að hafa húmor fyrir sjálfum sér og það hefur þú greinilega. Vandamálið með íslensk hús almennt er að það er of lágt til lofts. Skil það reyndar ekki þar sem það kostar ekkert að kynda á Íslandi.
    Verð að vera sammála þér að í svona ganga passar best að vera með ljós sem ekki sjást.
    Varðandi asbestið - ætli þú deyjir við að bora nokkur göt, það má alltaf vera með grímu. Var þetta ekki meira aumingja mennirnir sem unnu í þessu daginn út og inn sem fengu lungnaskaða ?
    Annars er ég komin með nýtt blogg á útlensku reyndar - ég er ekki búin að klæða stólana - en búin að kaupa efnið. Held að fólk sem aðhyllist þennan lífsstíl sé þolinmóðara en annað ;=) Maður verður að vera það - það er ekki eins og það sé alltaf lager af því sem mann vanhagar um í "brukt" búðunum.
    Læt addressuna flakka langi þér til að fylgjast með ;=)

    kveðja Dagný

    SvaraEyða
  2. Osei sei, það kostar nú svo sem að kynda, ég er ekki með hitaveitu auk þess sem húsið er gamalt og lélegt á köflum. Ég veit jú að það er víða dýrara.

    SvaraEyða
  3. 200 kr stk. Það er sko almennilegt.
    Geturðu ekki bara verið með grímu og gleraugu? Sundgleraugu, ef ekki vill betur?

    SvaraEyða