Snemma á þessu bloggi fjallaði ég um peysufötin mín. Í haust kom systurdóttir mín að máli við mig og spurði hvort ég hefði ráð með að aðstoða hana við að klæðast íslenskum búningi á árshátíð Menntaskólans en þar er hefð að efstubekkingar klæðast þannig. Við mamma tókum að okkur verkefnið og við hittumst allar hjá mömmu þar sem við prófuðum upphlut mömmu og fötin mín og niðurstaðan varð sú að ég þræddi saman mín föt en hún notaði svo húfuna hennar mömmu.
Hér er búið að þræða upp og niður og kenna á slifsið og fleira mikilvægt.
Vinkona hennar á svo heiðurinn af greiðslunni sem óneitanlega byggir á gömlum grunni. Mér fannst eiginlega stórmerkilegt hvað gekk vel að aðlaga fötin þar sem munar líklega einum 25 kílóum á okkur frænkum. Ég var svo að fara tína þræðingarnar úr til að hafa fötin tilbúin handa mér fyrir skírnina þegar ég áttaði mig á að stóra nafna mín, sú sem á að fermast í sumar, væri væntanleg og hugsaði að ekki væri nú leiðinlegt að prófa að máta á hana líka og taka myndir.
Það tókst aldeilis prýðilega svona til myndatöku en óneitanlega var nokkurt pláss ónotað enda barnið bara 13 ára. Við Elsa smelltum af í gríð og ergi á þrjár myndavélar og voru áreiðanlega teknar hátt í hundrað myndir.
Þarna greip hún gítar langafa síns ofan af vegg til að fá tilbreytingu í tilveruna.
Til samanburðar er svo hér ein af þeirri gömlu. Þarna ber hárið enn merki þess að hafa verið litað svart í þágu leiklistarinnar.