Fyrir nokkrum árum fékk ég þetta fína handgerða kóngakerti hjá henni Höddu en hef ekki getað notað það vegna þess að ég átti ekki hæfilega víðan stjaka. Síðast þegar ég fór í Kynlega kvisti fann ég loksins einn góðan og hann kostaði heilar 200 krónur.
Tók þar þessa ramma líka, þar sem ég er með rammafíkn og var ekkert að gera mér rellu yfir að svolítið er kvarnað úr brún á öðrum þeirra. Það er reyndar nokkuð algengt á svona römmum. Ég er búin að eignast þá nokkra á flóamörkuðum. Svona rammafíkn fylgja stundum svona útsaumsmyndir af ýmsu tagi sem ég hef engan sérstakan áhuga á en nú hef ég fengið afar góða hugmynd um hvað gera megi við allskonar gamlan útsaum og vefnað sem fólk hefur verið að koma á mig svona bara af því að ég get ekki hent neinu. Ég ætla samt ekki að gefa neitt upp um það núna og miðað við núverandi heilsu er ekki líklegt að ég geri neitt í þessu þennan veturinn en við sjáum til. Þetta étur ekki mat eins og stundum er sagt.
Ég gleymdi svo eiginlega að mynda kertið í stjakanum almennilega en hér er ein úr jólaboðinu.
Það þýðir bara ekkert að reyna að snúa myndinni til að sjá þetta betur, ég er búin að prófa.
Þetta er sérstakt kerti. Verður gaman að vita hvað þú hyggst gera með allan útsauminn...
SvaraEyðaÉg var að lesa viðtal við konu sem býr til púða úr öllum svona útsaumuðum myndum, það kom mjög vel út hjá henni:) Þessar myndir sem þú ert með virðast reyndar fremur litlar, en ég er viss um að þú kemur þeim í gott brúk.
SvaraEyðaJá er það? Mér hafði líka dottið púðar í hug en fyrst ég er farin að tala um þetta get ég sagt ykkur "svona í trúnaði" að ég ætla að prófa að nota svona parta með tilfæringum í töskur. Ásamt ýmiskonar skinnavöru.
SvaraEyðaSegðu mér endilega hvar þetta viðtal er.
Það er sniðugt hjá þér og koma áreiðanlega skemmtilegar töskur út úr því.
SvaraEyðaMig minnir að það hafi verið í Vikunni, sá þetta allavega síðast þegar ég var í klippingu. Mér líst vel á að nota útsauminn í töskur!
SvaraEyðaÞú varst nú aldeilis fín í Vikunni um daginn Beta!
Eyða